James 2

1Bræður mínir, farið ekki í manngreinarálit, þér sem trúið á dýrðardrottin vorn Jesú Krist. 2Nú kemur maður inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum, 3ef öll athygli yðar beinist að þeim, sem skartklæðin ber, og þér segið: ,,Settu þig hérna í gott sæti!`` en segið við fátæka manninn: ,,Stattu þarna, eða settu þig á gólfið við fótskör mína!`` 4hafið þér þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með vondum hugsunum? 5Heyrið, bræður mínir elskaðir! Hefur Guð ekki útvalið þá, sem fátækir eru í augum heimsins, til þess að þeir verði auðugir í trú og erfingjar þess ríkis, er hann hefur heitið þeim, sem elska hann? 6En þér hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku, sem undiroka yður og draga yður fyrir dómstóla? 7Eru það ekki þeir, sem lastmæla hinu góða nafni, sem nefnt var yfir yður? 8Ef þér uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: ,,Þú skalt elska náunga þinn sem sjálfan þig``, þá gjörið þér vel. 9En ef þér farið í manngreinarálit, þá drýgið þér synd og lögmálið sannar upp á yður að þér séuð brotamenn. 10Þótt einhver héldi allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess. 11Því sá sem sagði: ,,Þú skalt ekki hórdóm drýgja``, hann sagði líka: ,,Þú skalt ekki morð fremja.`` En þó að þú drýgir ekki hór, en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið. 12Talið því og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins. 13Því að dómurinn verður miskunnarlaus þeim, sem ekki auðsýndi miskunn, en miskunnsemin gengur sigri hrósandi að dómi. 14Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann? 15Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi 16og einhver yðar segði við þau: ,,Farið í friði, vermið yður og mettið!`` en þér gefið þeim ekki það, sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það? 17Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin. 18En nú segir einhver: ,,Einn hefur trú, annar verk.`` Sýn mér þá trú þína án verkanna, og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum. 19Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast. 20Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna? 21Réttlættist ekki Abraham faðir vor af verkum, er hann lagði son sinn Ísak á altarið? 22Þú sérð, að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum. 23Og ritningin rættist, sem segir: ,,Abraham trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað,`` og hann var kallaður Guðs vinur. 24Þér sjáið, að maðurinn réttlætist af verkum og ekki af trú einni saman. 25Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum, er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið? 26Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.
Copyright information for Icelandic